Það er gaman að sjá unga og efnilega veiðimenn renna fyrir fisk, áhuginn er svo sannarlega fyrir hendi. Mestu skiptir að veiða eitthvað og þá fá þeir meiri áhuga á veiðiskapnum, það sem skiptir öllu máli.
Hér er Birgir jr. með tvo væna urriða á myndinni sem hann veiddi í Eyvindará í blíðunni á dögunum, þegar hann var á ferðalagi um Austurland með foreldrum sínum. Faðir hans Biggi Nielsen sagði að peyinn væri tekinn við.
„Hann er áhugasamur um veiðina eins og maður var á þessum aldri, það vantar ekki, hann er að taka við strákurinn,” sagði Birgir Nielsen þegar við spurðum um soninn nýkominn austur af Héraði með flotta urriða.