„Við erum búnir að fá nokkra laxa félagarnir en hollið hefur veitt um 30 laxa. Það er minna en í fyrra hérna hjá okkur, það er líka minni fiskur greinilega en síðustu ár,“ sagði Bjarni Ákason við Austurá í Miðfirði í dag þegar við hittum þá félaga hann og Valdimar Grímsson. Þeir hafa veitt þarna saman í Miðfjarðará í ein 30 ára og oft fengið flotta veiði.
„Það er fiskur á nokkrum stöðum en hann er tregur, eins og hérna í Austuránni, já svolítið af fiski hérna,” sagði Bjarni ennfremur og Valdimar hafði kastað flugunni í hylinn. „Fiskur er ekkert taka hérna,“ sagði Valdimar Grímsson um stöðuna við Austurá, þeir voru sammála að færa sig neðar í ánni.
Miðfjarðará hefur gefið 1230 laxa en í fyrra endaði veiðin í 1796 löxum. Það sama er að gerast í fleiri laxveiðiám í nágrenninu eins og Hrútafjarðará, Víðidalsá og Vatnsdalsá.