Myndasafn

Mandarínönd

Mandarínönd (fræðiheitiAix galericulata) er fugl af andaætt. Mandarínönd er meðalstór trjáönd(Carinini) ættuð úr Austur-Asíu og er skyld hinni norðuramerísku brúðönd. Trjáendur eru endur sem verja miklum tíma í trjám en eru svipaðar buslöndum. Mandarínönd er 41 – 49 sm löng með 65-75 sm vænghaf. Karlfuglinn er afar litskrúðugur og þekkist auðveldlega. Hann hefur rauðan gogg, stóra hvítar flekki yfir auga og rauðleitt andlit. Brjóstið er fjólublátt með tveimur lóðréttum röndum og á bakinu eru tvo appelsínugul „segl“. Kvenfuglinn (kollan) er svipuð kvenfugli brúðandar með hvítan hring kringum auga og strípu sem liggur niður og aftur með auga en fölari að neðan.

Wikipidedia