FréttirMaríulax

Aðaltöffarinn í bænum með maríulax

Veiðiugginn bitinn af

Hann Erlingur Mark tók veiðitúrinn með stæl og veiddi maríulaxinn sinn  í Þrjósá um helgina. En Þjórsá hefur gefið 450 laxar í sumar og bolti veiddist í þessum veiðitúr um helgin, 101,2 sentimetrar eins og við höfum greint frá en það  gerðist meira í þessum merkilega veiðitúr.

„Já þetta var flottur veiðitúr, bolti og maríulax,“ sagði Grétar Jóhannes Sigvaldason og bætti strax við án þess að hugsa mikið. „Erlingur Mark setti í maríulaxinn í veiðistaðnum Huldu og var lengi með hann, hann ætlaði sko ekki að missa fiskinn. En að lokum var honum landað og veiðiugginn bitinn af, svakalega gaman,“ sagði Grétar Jóhannes um maríulaxinn sem tók langan tíma að landa, en allt hefst að lokum.

Þeir hafa margir komið á land maríulaxarnir í Urriðafossi í sumar og mörgun sinnum áður en aðstæður eru erfiðar og bara taka þessu rólega, hver vill missa maríulaxinn.  Fáir.