FréttirVeiðitölur

Slöngumerki í laxinum

Það er gaman frá því að segja að í fyrradag, 16. ágúst, fengum við 70 cm hæng á Steinseyrarbreiðu í Fljótá í Fljótum. Sá var með gamalt slöngumerki í sér og hafði áður veiðst og verið merktur 1. ágúst í fyrra á Efra vaði og var þá aðeins 55 cm!

Veiðin hefur verið góð í ánni í sumar og veiðst yfir 2000 bleikjur og töluvert af laxi.

Efri-Flokadalsá hefur gefið yfir 1000 bleikjur sem er frábær veiði í bleikjunni.