FréttirUrriði

Sá stóri slapp og ævintýrið var búið

Bjarni Benediktsson með flottan urriða úr Þingvallavatni

„Þeir virðast hafa bætt ágætlega á sig í sumar, heilt yfir voru þetta stærri fiskar en ég sá í vor og í góðum holdum,” sagði Bjarni Benediktsson sem var á veiðum í Þingvallvatni um helgina og bætti við; sá stærsti sem ég náði var 68cm, myndin er af honum. Hann kom á Black Ghost.

Þórður Þórarinsson setti í einn hnausþykkan sem lét öllum illum látum. Hann var með línu 6 og fiskurinn fór strax langt á undirlínu lengst út í vatn. Það var eins gott fyrir Þórð að vera ekki með fingurna nálægt hjólinu þegar hann spændi út línuna svo hvein í. Smám saman kom hann nær landi. Einu sinni tók hann myndarlegt stökk, kom allur uppúr, og sást vel hve hnausþykkur og stór hann var. Hann getur ekki hafa verið undir 80cm. Hann var kominn nálægt landi og ég sá hann ágætlega með fluguna í kjaftinum og hve sver og langur hann var. Skyndilega var allt laust og ævintýrið búið,” sagði Bjarni enn fremur.