97 cm höfðingi á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal
Feðgarnir Máni Freyr Helgason og Helgi Jóhannesson voru við veiðar á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal fyrir skömmu og var markmiðið einfalt, að Máni næði að landa alvöru stórlaxi.
Norðlenska haustið tók vel á móti þeim og sýndi allar sínar bestu hliðar. Á einum tímapunkti snjóaði meira að segja í fjöllunum í kring. Þegar líða tók á seinni kvöldvaktina lægði vindinn og héldu þeir í Símastreng, en þar höfðu þeir einmitt séð laxinn stökkva deginum áður.
Máni valdi fluguna Cascade og ekki leið á löngu þar til laxinn tók af krafti á nákvæmlega sama stað og hann hafði stokkið. Eftir góða viðureign kom laxinn á land og mældist 97 cm. að lengd, og markmið ferðarinnar náð. Er þetta jafnframt stærsti lax sem veiðst hefur á Miðsvæðinu í sumar.
Laxá í Aðaldal er að komast í 1000 laxa sem er fín veiði.

