FréttirRjúpanSkotveiði

Rjúpnaveiðin hefst á föstudaginn

Rjúpnaveiðin hefst á föstudaginn kemur og veiðimenn eru farnir að hugsa til heiða og fjalla.
Margir ætla fyrstu dagana á veiðislóðir og ná sér í jólamatinn, það er ekki seinna vænna.

Veiðitímabilið er eftirfarandi sbr. landakort:

Austurland                  23. október – 22. desember
Norðausturland         23. október – 1. desember
Norðvesturland         23. október – 17. nóvember
Suðurland                   23. október – 17. nóvember
Vesturland                  23. október – 1. desember
Vestfirðir                     23. október – 24. nóvember

















Veiðin má hefjast föstudaginn 23. október á öllum veiðisvæðum og veiði er heimil frá og með föstudegi til og með þriðjudags innan tímabils hvers veiðisvæðis. Því er óleyfilegt að veiða rjúpu miðvikudaga og fimmtudaga.

Skipting veiðisvæða eftir landshlutum ásamt veiðitímabili hvers svæðis. Minnt er á að hægt er að nota kortasjá til að skoða mörk veiðisvæða.

Náttúruverndarstofnun biðlar sérstaklega til veiðimanna að sýna hófsemi við veiðar. Mikilvægt er að allir hagsmunaaðilar komi að því hvatningarátaki. Sölubann á rjúpu er enn í gildi og veiðar óheimilar á Reykjanesi (Landnám Ingólfs).