Flott á fjöllum margir með góða veiði
Það voru margir sem fóru til rjúpna á fyrsta degi, flott veður og mikið af fugli. En allir að keppast við að ná í jólamatinn og við heyrum aðeins í veiðimönnum, sem fóru eldsnemma í morgun til rjúpna.
„Ég get sagt þér að þetta var ansi góður dagur á fjöllum í dag,” sagði Guðjón Þór Jónsson, sem var á fjöllum á fyrsta degi og veiddi vel í jólamatinn. „Veiðin byrjaði vel hjá mér, flott veður og víða fugl,” sagði Guðjón enn fremur.
„Já veiðin gekk hjá okkur, dóttirin var tekin með á fyrsta degi, við vorum í Borgarfirði,” sagði Skúli Sigurz Kristjánsson á veiðislóð og bætti við: „Það gekk bara vel, aðalmarkmiðið var að leyfa litunni, dóttur minni að upplifa þetta aðeins. Það gekk eftir, hún fann sína fyrstu rjúpu og sótti hana svo. Við sáum slatta af fugli en það var alveg snjólaust og þar var hún í hrauninu, en hún var mjög stygg. Þar var hún í stærri hópum,” sagði Skúli Sigurz enn fremur.
Rjúpnaveiðin hefur byrjað vel en lítill snjór er kominn eða jafnvel bara enginn. Það er spáð róliyndisveðri næstu daga.


