Forleikur að vetri er hafinn, með mildri haustsinfóníu…
„Rjúpnaveiðin á mínum bæ hefur verið með ágætum það sem af er tímabili. Andstæðurnar samt miklar. Fyrsta helgin í alhvítri jörð og þurft að hafa nokkuð fyrir því að finna fuglinn á Tröllaskaganum en fín veiði samt sem áður,“ sagði Helgi Steinar Andrésson og bætti við; „Síðan hefur verið nánast snjólaust nema upp á hæstu fjöllum. Náði því miður ekkert að fara aðra helgina vegna covid veikinda (hver fær svoleiðis nú til dags eiginlega!). Þá voru aðstæður góðar til veiða á norður og austurlandi og aflinn hjá mörgum góður. Erfitt að sitja heima við þannig ástand.
Fórum því þrír saman félagarnir í gær, laugardaginn 7. nóvember hérna á eyjafjarðarsvæðinu í ágætisaðstæðum. Smá gola, 8° hiti og snjólaust hátt upp í 500-600m hæð. Skemmst frá því að segja að fljótt varð þetta að roki, rigningu, þoku og leiðindum.
Höfðum samt eina 16 fugla upp úr krafsinu og ágætis viðrun.
Byssan fékk samt að hanga heima í þurrki daginn eftir þar sem veðrið var í raun verra, alvöru Reykjavíkursuddi sem er tekur gleðina eiginlega alveg úr veiðinni.
Nú horfir í að það fari að snjóa og vonandi sem mest þar sem 1-2 helgar eru eftir hérna á NV og NA landi. Draumurinn er að komast í kjarrveiði allavega einn dag á tímabilinu, það væri frábært,“ sagði Helgi Steinar i lokin.


