Bubbi Morthens er við veiðar í Laxá í Aðaldal þessa dagana og gengur ágætlega. En hann mun halda tónleika eins og hann hefur gert síðustu árin í kirkjunni í Nesi á laugardagskvöldið og er frítt inn eins og alltaf.
„Já ég fékk þrjá laxa í dag og það var fínt bara en ég verð að veiða í Laxá áfram og síðan verða tónleikarnir í Nesis,” sagði Bubbi en fullt hefur verið út úr dyrum í kirkjunni, sem er steinsnar frá Laxá í Aðaldal, veiðin hefur byrjað ágætlega þetta sumarið.
Mynd. Bubbi Morthens með flottan lax úr Laxá í Aðaldal.