Hver laxveiðiáin að annarri opnar þessa dagana og byrjunin er víða ágætt, Hítará gaf tíu laxa fyrsta daginn og Grímsá í Borgarfirði þrjá. Langá á Mýrum opnar í fyrramálið með vöskum veiðimönnum og konum.
„Já það er búið að vera klikkað að skemmta út um allt og svo er það Langá á Mýrum næst á dagskrá. Það verður gaman að opna ána með skemmtilegu fólki eins og síðustu árin,“ sagði Jógvan Hansen þegar við heyrðum í honum en Langá opnar í fyrramálið á slaginu sjö, það verður örugglega fjör á bakkanum.
„Maður veit ekki með veiðina hvernig hún verður en það hafa sést laxar í ánni nýlega og aldrei að vita hvað gerist, það verður reynt vel. Það verður eitthvað meira um veiða í sumar en fátt er skemmtilegra en laxveiði,„ sagði Jógvan að lokum.