Fréttir

Rok, haglél og sól á bakkanum

„Það var spenna í hópnum sérstaklega þar sem hollið 3. – 5. apríl var með um 300 fiska.  En við fengum ekki lottóið, vorum með 3 rétta,“ sagði Helga Veiðir um veiðiturinn í Geirlandsá.

„Áin var í 20m/s  sem er slatta mikið, lituð og Stjórnarfoss að hreinsa sig með tilfallandi ísreki niður ána.  Það var bara fyrir þá huguðustu að vaða einn/ein yfir álinn til að komast í neðri Ármót. 
Fórum annars saman svo mikill var straumurinn. En við létum þetta ekki á okkur fá og það kom einn og einn á land.
Veðrið var allskonar, rok, rigning, haglél og sól.  Á lokavaktinni var ég mætt niður i Ármót um kl 8 og áin búin að hreinsa sig og setti strax í einn 65 cm, náði svo tveimur til viðbótar 65 cm og 78 cm.  
Allir tóku tröllafiskaflugu sem ég hafði hnýtt fyrir ferðina. Vúpp, vúpp, vúpp.  Hollið var með 16 fiska í heildina og þar af komu 8 á land á lokavaktinni þar af einn 88 cm,“ sagði Helga Veiðir í lokin.