Framtíð Elliðaánna – opinn fundur með frambjóðendum

Fimmtudaginn 16. apríl klukkan 20:00 efnir Stangaveiðifélag Reykjavíkur til opins fundar um málefni Elliðaánna og býður öllum stjórnmálaflokkum, sem taka þátt í komandi borgarstjórnarkosningum, að koma og gera grein fyrir afstöðu sinni.
Elliðaárnar eru meðal bestu lax- og silungsveiðiáa landsins og jafnframt einstakt náttúrufyrirbæri í miðri höfuðborg. Lífríki þeirra er frjósamt en viðkvæmt fyrir álagi. SVFR var stofnað til að vernda árnar og sú ábyrgð stendur óhögguð, þótt tæp 90 ár séu frá stofnun félagsins.
Á fundinum verður rætt um framtíð ánna, framkvæmdir á áhrifasvæði þeirra, aukna umferð um dalinn, fjölgun göngu- og hjólabrúa og hvernig borgin hyggst tryggja raunverulega vernd Elliðaánna.
Þann 26. febrúar sl. var samþykkt ályktun um vernd Elliðaánna á aðalfundi SVFR sem lesa má hér. Á fimmtudaginn viljum við skapa vettvang fyrir opna, málefnalega og skýra umræðu við þá sem sækjast eftir umboði borgarbúa.
Fundurinn fer fram á kaffihúsinu Elliða við Rafstöðvarveg 10-12, rétt við gömlu rafstöðina í hjarta Elliðaárdals, og er opinn öllum.

