Laxá á Ásum klikkar ekki
„Við bræður fórum til veiða á silungasvæði Laxár á Ásum fyrir skommu fullir tilhlökkunar, en þó með hóflegar væntingar, því kalt hafði verið í veðri dagana á undan,“ sagði Marvin Valdimarsson og bætir við; „Laxá á Ásum er eins og alþjóð veit ein albesta laxveiðiá landsins en hún á einnig stórskemmtilegan sameiginlegan ós með systur sinni, Vatnsdalsá þar sem mikið getur verið af fiski, sjóbleikja, sjóbirtingur og lax á göngu, þegar líða fer á sumarið.
Mikil og sterk norðanátt tók á móti okkur á fyrstu vakt og gáfumst við því upp frekar snemma og fórum upp í hús, dreyptum á lífsins vatni, settum læri á grillið og lögðum á ráðin hvað við skildum gera daginn eftir. Háflóð daginn eftir var kl 13:00 og sammældumst við að vera mættir í ósinn um það leyti og veiða fram eftir degi.
Er við mættum daginn eftir var norðanáttin enn að stríða okkur og erfitt var að kasta flugunni til móts við vindinn en náðum þó við með erfiðsmunum að koma flugunni út. Óðinn Valdimarsson setti svo loksins í fyrstu bleikjuna með hvítum Nobbler og fundum við á okkur að það væri mögulega eitthvað gott í vændum og fiskurinn í góðu færi.
Reyndum við bræður þó nokkrar flugur, einna helst straumflugur í mörgum útfærslum, en lítið gekk fyrr en ég veðjaði á að setja undir „Bleika og Bláa“ púpu og þá hófst fjörið fyrir alvöru. Ég setti strax í tvær vænar bleikjur og hvatti ég bræður mína til að grafa upp Bleika og Bláa í sínum fluguboxum, sem og þeir gerðu. Á einum og hálfum tíma veiddum við í sex vænar sjóbleikjur, milli 50-58 cm og tvo væna sjóbirtinga sem voru 60 cm og 65 cm og var virkilega gaman og flestir veiddir á Bleika og Blá púpu.
Við bræður erum nægjusamir og vorum sáttir með þetta litla skot sem kom þarna eftir hádegið og hættum við snemma að veiða aðaldaginn og héldum upp í hús til slökunnar og samveru.
Ósavæðið í Ásunum er dálítið svona, koma skot, og þá getur verið ævintýralega gaman að veiða þessa perlu í Húnavatnssýslunni,“ sagði Marvin enn fremur.


