Frábær byrjun hjá unga veiðimanninum
Benjamín Daníel Tómasson fór í fyrsta skiptið Í Laxá í Mývatnssveit með pabba sínum. Þeir feðgar gerðu ævintýralega góða veiði nánast á hverri einustu vakt en þetta var þriggja daga túr.
Hvort sem það var Stór Rektor straumfluga eða litlar tungsten púpur og andstreymisveiði þá var bara mok hjá þeim feðgum
Benjamín landaði 22 fiskum þar af tveimur 68 cm.fiskum en flestir fiskar voru 60-65 cm.
Flott að byrja kynni sýn á Laxá svona myndi ég segja,“ sagði Tómas Skúlason um fyrstu veiðiferðina hjá syninum í Mývatnssveitina.
Veiðin hefur verið fín í Mývatnssveitinni og veiðimenn sem við hittum í vikunni við bakkana voru ánægðir með flotta veiði og flotta fiska.


