Þverá í Borgarfirði verður ekki velt úr toppsætinu
„Já það mikið af fiski í Þverá þegar við vorum þar fyrir fáum dögum að veiða, flott vatn og mikið af fiski,” sagði Skúlisigurz Kristjánsson, en með honum á stöng Sólon Welding og þeir veiddu vel í túrnum.
„Sumir hylirnir voru stappaðir laxi en við fengum 13 löxa á stöngina okkar,” sagði Skúlisigurz ennfremur.
Veiðimenn sem veitt hafa í Þverá og Kjarrá segja mikið af fiski. Þverá í Borgarfirði hefur gefið 1255 laxa en síðan kemur Norðurá í Borgarfirði með aðeins 540 laxa, svo Miðfjarðará með 450 laxa.
Það verður erfitt að velta Þverá úr toppsætinu á næstunni og líklega varla í sumar, veiðin hefur verið frábær, fiskurinn er fyrir hendi eða eins og einn veiðimaðurinn sagði fyrir skömmu: „Það er lax við lax í sumum hyljunum og vatnið gott þessa dagana. Þetta getur ekki verið betra og lax ennþá að ganga í ána.”
Veiðin er víða að komast á fleygiferð mikið af fiski víða og árnar að bæta sig verulega milli ára. Vatnið er flott og fiskurinn í góðu tökustuði.

