Fallegar minningar flott veiði
„Já við vorum í Leirvogsá fyrir fáum dögum,” sagði Ólafur Hallgrímsson og bætti við; „Bragi Hannesson tengdafaðir minn sem lést þann 1. júlí síðastliðinn 93 ára að aldri, hafði það fyrir venju að bjóða dætrum sínum tengdasonum, barna og barnabarnabörnum í veiði einn dag mörg undanfarin ár. Bragi var á sínum yngri árum áhugasamur veiðimaður sjálfur og veiddi víða. Hann var t.d í mörg ár leigutaki Skugga (ármót Hvítár og Grímsár) ásamt félögum sínum. Fjölskyldan fór nokkrum sinnum austur í Skógá og í Stóru Laxá í Hreppum og núna mörg undanfarin ár í Leirvogsá og þá tvær vaktir með ca tveggja vikna millibili. Seinni vaktin var morgunvakt 1. ágúst og fengust fjórir fiskar eins og tveim vikum áður. Bragi var alltaf með okkur á meðan hann lifði. Hann sat í bíl við árbakkann og naut þess að fylgjast með. Sjónin var næstum farin síðustu árin en gleðin var mikil þegar hann heyrði um hverja töku og hvern fisk. Systurnar, dætur Braga, koma með veitingar og dúka borð við árbakkann. Þessum veiðiferðum og samferða stundum ætlar fjölskyldan að halda áfram í minningu hans.
Morgunvakt í Leirvogsá 1. ágúst. Þrír laxar og einn sjóbirtingur. Missti fimm þar af slitu þrír
Og svo skemmtileg saga úr Leirvogsá. Strax upp úr kl 7 setti ég í flottan fisk á rauðan francis um daginn og eftir smá tíma stakk hann sér fyrir stein og fór með fluguna og megnið af taumnum. Ég græjaði nýtt og eins flugu. Í fyrsta kasti er þessi flotti fiskur á sem stökk og djöflaðist. Eftir ca korter var hann allt í einu farinn. Þegar ég dreg inn línuna tek ég eftir því að á flugunni hangir hin flugan og taumurinn. Þá hafði ég sett í sama fiskinn og ég missti stuttu áður,, sagði Ólafur ennfremur.


