Yfir tvö þúsund silungar í Mallandsvötnum
Heildarveiði í Mallandsvötnum sumarið 2026 var 2.051 silungar, en síðasta hollið hjá okkur lauk veiði 3. september,“ segir Einar Páll Kjærnested á Mallandi. „Þetta er um 50% aukning frá sumrinu 2025, þegar veiddust 1.359 fiskar, Mesta veiðin var í Selvatni og Skjaldbreiðarvatn en Rangatjarnir, Urðartjörn og Álftavatn skiluðu einnig mjög góðri veiði. Urriðar voru 1.580 og bleikjur 471, eða 23% af heildaraflanum, en bleikjan var áberandi sterkust í Rangatjörnum og Álftavatni, þar sem hún var 44-48% aflans. Meðalþyngdin úr vötnunum var góð og stærsti fiskurinn var 5,5 pund og veiddist hann í Urðartjörn í ágúst. Skjaldbreiðarvatn, Álftavatn, Rangatjarnir og Selvatn skiluð öll yfir 4 punda fiskum.
Sumarið byrjaði af krafti, því 385 fiskar veiddust fyrstu vikuna í júní, og júlí og ágúst voru einnig mun betri en í fyrra. Sama fyrirkomulag var hjá okkur í sumar og sl. 2 ár, hingað koma 6-8 manna hópar sem leigja allt svæðið í 2-4 nætur og gista í sjálfsmennsku á Mallandi, mikið er um að vinahópar og fjölskyldur séu að koma til okkar árlega. Það er gaman að fylgjast með því hversu fjölbreyttur hópur fólks stundar vatnaveiði hjá okkur á Skagaheiðinni.
Núna í haust erum við í vegavinnu, höfum m.a. endurbætt veginn niður að Urðartjörn, þar sem við erum að smíða 15 fermetra hús, þar sem veiðimenn geta sest niður, hitað sér kaffi á kamínu og grillað. Undirbúningur fyrir næsta sumar er þegar hafinn og við reiknum með að hefja formlega sölu veiðileyfa fyrir sumarið 2027 fljótlega upp úr áramótum,“ sagði Einar að lokum.


