Rjúpnaveiðin byrjar af miklum krafti
„Við fengum 26 rjúpur fyrstu dagana sem ég mætt til veiða og það dugir alveg,“ sagði Gunnar Ólafur Kristleifsson þegar við spurðum hann um rjúpnaveiðina í byrjun veiðitímanns og bætti við; „veiðin hefur gengið hjá okkur feðgum í haust. Mjög gott haust hefur verið í veiðinni og við fengum 70 heiðargæsir í haust og þetta er orðið fínt,“ sagði Gunnar ennfremur.
Við erum að heyra flottar aflatölur víða um land og mikið af fugl. „Var fyrir austan og þar er mikið af fugli, jólamaturinn er kominn í frystinn og maður þarf ekki meira á rjúpuveiðar þetta árið,“ sagði annar veiðimaður sem var orðinn vel birgur að rjúpum.
Upp í Borgarfirði gekk vel, lítill snjór og vetur í Dölum líka og veðurfarið að næstunni er flott. Snjórinn sem var kominn einhvers staðar mun hverfa á næstu dögum.
Einhverjir fleiri ætla ekki meira til veiða, þeir eru komnir með nóg og það er fínt. Kannski væri bara gott að fá smá snjó á auða jörðina en veðurspáin er hreint ótrúleg næstu vikurnar.
Í dag og fimmtudag má ekki skjóta rjúpuna, ágætt að hún fái smá pásu eftir síðustu dag.

