Urtönd er minnsta öndin sem verpur hér og raunar minnsta önd Evrópu. Hún er afar snör í snúningum og stygg. Í fjarska virðist steggurinn vera dökkgrár með dökkt höfuð. Hann er dökkrauðbrúnn á höfði og hálsi, með græna, ljósbrydda geira frá augum og aftur á hnakka. Bringan er gulleit með dökkum doppum, búkur að öðru leyti grár að undanskildum svörtum gumpi og undirgumpi, með rjómagulum flekkjum á hliðum. Svartar og hvítar axlafjaðrirnar mynda áberandi rákir á hliðum þegar vængir eru aðfelldir. Í felubúningi er steggur eins og kolla, með dökkan koll og augnrák. Bæði kyn eru með hvítan kvið og dökkgræna vængspegla með áberandi hvítum framjaðri. 

Þessi litli, kviki og hraðfleygi fugl er hálfgerður náttfugl og mest á ferli í ljósaskiptunum og á nóttunni. Oft sjást urtendur fljúga lágt í þéttum, litlum hópi og svipar þá til vaðfugla. Urtöndin hefur sig bratt til flugs, er lítil og þéttvaxin með hnöttótt höfuð, stuttan háls og mjóa vængi. Hún er félagslynd utan varptíma en afar stygg og felugjörn.

Fæða og fæðuhættir: 
Svipað fæðuval og fæðuhættir og hjá öðrum buslöndum. Etur fræ og græna plöntuhluta, einnig ber og á varptíma er dýrafæða uppistaðan.

Mynd: María Gunnarsdóttir
Fræðiheiti: Anas crecca
Fuglavefurinn.is