FréttirSjóbirtingur

Leirá dottin í gírinn, loksins

Harpa Hlín Þórðardóttir með þennan flotta sjóbirting í Leirá í Leirársveit

Fyrsti sjóbirtingur vorsins kom á land núna fyrir stuttu í Leirá Leirársveit en ekkert hefur verið hægt að veiða í ánnu vegna ísa.
Loksins lét páskahretið undan og ísinn byrjaði að þiðna eftir góða vætu og milt veður. Töluvert vatn er í ánni en megnið af ísnum hefur skila sér niður.
Það verður spennandi að sjá hvernig dagurinn þróast, nánari fréttir og tölur síðar.

Búast má við að áin fari að gefa þegar veiðimenn finna fiskinn í henni sem er vatnsmikil þessa dagana og tölur eru á leiðinni af veiði næstu daga.