„Já ég fékk þennan flotta sjóbirting neðarlega á Vatnasvæði Lýsu,“ sagði Ágúst Tómasson, sem var á Vatnasvæði Lýsu í vikunni. En veiðimenn hafa verið að fá fiska á svæðinu fyrir skömmu og þar á meðal laxa. Eitthvað hefur veiðst af laxi allavega nokkra fiskar.
„Þetta var 62 sentimetra fiskur sem ég fékk og það var bara skemmtilegt og síðan fengum við tíu smábleikjur í lækjunum,“ sagði Ágúst ennfremur.
Hraunsfjörðurinn hefur verið að gefa bleikjur og veiðimaður sem var fyrir skömmu fékk tíu bleikjur, sæmilega fiska.
Mynd. Ágúst Tómasson með sjóbirtinginn flotta af Vatnasvæði Lýsu í vikunni.