FréttirOpnun

Milli snjóstorma getur ýmislegt gerst

Magnús Stefánsson með bleikju úr Þrastarlundi í Sogi

Veiðimenn hafa farið víða síðan vorveiðin hófst og líklega hafa veiðst á öllum veiðisvæðum kringum 800 fiskar sem verður teljast bara mjög gott við aðstæður núna. „Við enduðum í 162 fiskum í fyrsta hollinu í Geirlandsá, mjög gott bara,“ sagði Bjarki Bóasson sem opnaði Geirlandsá og veiðin hélt áfram.
Fyrsta hollið í Litluá í Kelduhverfi fór vel á þriðja hundrað fiska. Aðstæður hafa kannski ekki verið upp á tíu en veiðin hefur bara gengið vel.
„Vorum nokkrir félagar að taka úr okkur hrollinn enda Þrastalundur fullkominn í það,“ sagði Magnús Stefánsson og bætti við; „milli snjóstorma gerði algjöra stillu og þá tók þessi fallega bleikja litla vínil púpu,“ sagði Magnús enn fremur.

Halldór Gunnarsson með fisk úr Geirlandsá í gærdag

„Við erum að byrja í Geirlandsá og komnir strax nokkrir fiskar,“ sagði Halldór Gunnarsson á bökkum Geirlandsár í fyrradag nýbúinn að landa einum flottum.

Lítið hefur frést af sumum veiðisvæðum og bara ekki neitt en Minnivallalækur hefur gefið 14 fiska það sem af er. „Já það hafa veiðst 14 fiskar, síðan lækurinn opnaði,“ sagði Þröstur Elliðason við lækinn í gær og ennþá að veiðast regnbogasilungur sem enginn veit hvaðan koma og engin veit deili á.