FréttirViðtöl

Ungir og efnilegir veiðimenn í Hafnarfirði

„Við erum að fara að veiða já, við veiðum aðeins og erum spenntir að fara niður í bryggju í Hafnarfirði,“ sögðu þessir ungu og hressu veiðimenn í dag þegar við hittum þá við Hafnarfjarðarlæk rétt um hádegi klárir í slaginn í veiðinni.

Þeir voru ekkert að spá í Mandarínöndina fyrir aftan þá og voru klárir í veiði við höfnina. „Já við fórum stundum að veiða,“ sögðu þeir og stangirnar voru klárar í veiðiskapinn. 

Veiðimönnum á öllum aldri fjölgar við bryggjunar þessa dagana á öllum aldri, veiðin hefur glæðast og það er fyrir mestu núna. „Við ætlum að veiða eitthvað í sumar,“ sögðu þeir og héldu áfram á áfangastaðinn, veiðina við bryggjuna. Þar er yfirleittt alltaf eitthvað að hafa – það er fyrir mestu.