FréttirUrriði

Urriðaveiði Laxá í Aðaldal, miðsvæðið að gefa

Hann er á í Fornaflúð

Nokkrir fóru til urriðaveiða á þetta svæði 19.-21. maí s.l. og gerðu fína veiði. Hluti þeirra þekkti laxastaði svæðisins svo sem Óseyri, Dýjaveitur og Smáeyjarnar en allir voru í fyrsti skipti á svæðinu til að veiða urriða. Farið var víða og bæði var veitt á straumflugur og púpur með tökuvara og fengust fiskar með báðum aðferðum, mest þó á púpur. Um helmingur af aflanum var vænn urriði, 50 cm og yfir og á tveim dögum var landað um 15 fiskum og nokkrir misstir eins og gengur og gerist. Aðstaðan í veiðihúsinu á Jarlsstöðum var til fyrirmyndir og allt til alls þannig að það væsti ekki um veiðimenn.

Hann er aftur á í Fornaflúð, veiðimaður Hilmar Jónasson
Það er ekki alltaf jólin, sérstaklega þegar rokið lætur finna fyrir sér
Flottur 54 cm urriði tekinn á Krókinn í Fornaflúð, veiðimaður Jónas Marteinsson
Það þarf að gera vel við sig í mat og drykk
58 cm urriði sem tók Black Ghost