Fréttir

Frændurnir fóru í Veiðvötn

Ásgeir Ólafsson með flottan fisk úr ferðinni

„Èg og frændi vorum að koma úr Veiðivötnum, áttum þar tvo mjög skemmtilega daga,“ sagði Ásgeir Ólafsson um veiðiferðina.

„Það er eitthvað við að koma á þennan einstaka stað. Maður kemst í sitt allra besta skap. Veiðin hjá manni getur verið mjög misjöfn milli túra þarna uppfrá en það breytir engu. Aðalatriðið er að njóta þess að vera þarna.

Við fengum nokkra væna fiska að þessu sinni sem gaman var að kljást við. Nú er bara að bíða eftir næsta túr í Veiðivötn en það verður sem betur fer stutt bið,“ sagði Ásgeir enn fremur.