Fréttir

Feitir og fallegir fiskar

Gylfi Jón Gylfason var að veiðum með Ingvari Páli Jóhannssyni í Mývatnssveit í liðinni viku. 

Við gefum Gylfa Jóni orðið:

Fyrsta vaktin okkar á Brettingstöðum reyndist dyrarvarðarvakt.

Dyraverðir nefnast þeir stórir fiskar sem eru vaxnir eins og dyraverðir, utan það að  þeir eru fótalausir. Við fengum einn 54 centimetra titt, hinir fimm voru að raða sér sitt hvoru megin við 60 sentimetrana með þann stærsta 65 sentimetra. Ingvar Páll var að koma í fyrsta skipti og hann byrjaðið sína fyrstu vakt á að taka 59 cm fisk. Þvílík byrjun!  Stærsti fiskurinn var ógleymanlegur, hreinsaði sig alllan upp úr ánni sjö sinnum og fór mörgum sinnum niður á undirlínu. Reyndir veiðimenn sem ég talaði við í túrnum voru á einu máli um það að fiskurinn í ánni hefði sjaldan, ef nokkurn tíma verið jafn vel haldinn og í ár, allar stangir voru að veiða vel og allur fiskur í góðum holdum. Holdafar fiska á fyrsta vaktininni okkar var í takt við frásagnir annarra veiðimanna. Allir fiskarnir voru  það feitir og pattaralegir að hefðu þeir verið mennskir hefðu þeir af lækni verið sendir lóðbeint í ermi og svuntu á eftir.