Tólf ár í Vola og aldrei fisklausar
„Við höfum veitt í Vola síðan 2014 og það er alltaf jafn mikil tilhlökkun að komast aftur,“ segir Þórhildur Guðbjörg Hjaltadóttir, sem hafa veitt þarna í 12 ár og núna síðast fyrir nokkrum dögum.
„Það er alltaf bullandi líf á svæðinu, mikið af fiski og veiðin sérstaklega góð síðsumars og á haustin. Komu nokkrir vænir sjóbirtingar á land, við höfum sjaldan eða aldrei farið heim fisklausar og það segir sitt!
Eftir öll þessi ár er Voli enn í miklu uppáhaldi hjá okkur. Falleg náttúra, góð stemning, frábær félagsskapur og nóg af fiski. Hvað er hægt að biðja um meira,“ sagði Þórhildur enn fremur.



