FréttirRisafiskurVeiðitölur

Frábær veiði í Sandá, rígvænir laxar

Ólafur Finnbogason með Þistilfjarðarhöfðingja

Það hefur heldur betur verið líf og fjör í Sandá í Þistilfirði undanfarna daga og vikur en síðustu holl hafa skilað flottri veiði, þar sem stórir laxar hafa verið áberandi.

Tæplega helmingur þeirra laxa sem hafa veiðst frá miðjum ágúst hefur verið 75 cm eða lengri.

Einnig höfum við fengið fjölmargar sögur af löngum og spennandi viðureignum við alvöru Þistilfjarðarhöfðingja þar sem laxinn hafði betur að lokum. Stórlaxarnir eru því klárlega á stjá!

Sanda hefur gefið 244 laxa.