Kominn með tvö hundruð laxa og þann stærsta líka
Veiðin hefur verið víða verulega góða og veiðimenn verið að fá flotta veiði, við heyrðum í einum þeirra sem er búinn að veiða vel af laxi. Nils Folmer Jorgensen nýkomnum úr veiði.
„Já, það er búið að veiða mikið í sumar og ég var að koma úr Stóru-Laxá síðusta veiðiferð sumarsins,“ sagði Nils Folmer Jorgensen í samtali við veidar.is, eftir margar veiðiferðir um landið.
„Landaði í Stóru 95 og 86 sentimetra fiskum í miklu flóðvatni, mikið vatn já þarna. Í sumar er ég búinn að landa um 200 löxum á þessu veiðitímabili, allt náttúrulegir laxar. Þeir stærstu voru 107, 102 og 101 sentimetra langir. Sá stærsti veiddist í Laxá í Aðaldal, þetta er búið að vera gott sumar. Besta ferðin mín var í Jöklu, en það var síðustu dagana í júlí. Veiddi 66 laxa á fjórum dögum, sá stærsti var 102 sentimetra, þetta er búið að vera verulega gott Bender. Mikið af fiski,“ sagði Nils Folmer um veiðisumarið.


