Veiðisumarið var stórskemmtilegt og veiðin ágæt
„Ég fór í þessa föstu árlegu túra og byrjuðum við í vorveiði í Kjósinni í apríl, svo var ferðinni heitið á silungavæðið í Laxá á Ásum í maí. Það er einstaklega skemmtilegt og gaman að eltast við sjóbleikjuna,“ segir Marvin Valdimarsson og bættir strax við: „Svo var farið í Elliðaárnar um miðjan júlí og það var hreint ótrúlegt að sjá hversu mikið var af laxi í ánni þá, kraumaði áin hreinlega og mikið líf og gaman.
Í júlí fór svo stór hópur af hressum strákum á silungasvæðið í Vatnsdalsá og gerðum við ágæta veiði þar, fjölbreytt veiði, dalurinn fallegur og hægt að veiða alla flóruna þar. Engin veiði var bókuð í ágúst en í september var farið í árlegu laxveiðitúrana í Laxá á Ásum og Grímsá í Borgarfirði.
Því miður var norðurlandið ekki jafn gjöfult og vesturlandið þetta árið í laxveiðinni en við náðum þá nokkrum löxum í Ásunum þrátt fyrir vatnsleysi og erfiðar aðstæður. Ásarnir eru í miklu uppáhaldi hjá mér og mér finnst einstaklega gaman að veiða þar, staðir eins og Skotti, Tumi, Sauðaneskvörn og Nautafljótið eru æðislega skemmtilegir og himneskt að kasta litlum flugum þar.
Grímsá var svo aftur á móti full af laxi og var hægt að finna fisk á hverjum einasta veiðistað, lentum við í góðri veiði og gaman að upplifa svona ár, þegar mikið magn er af laxi í ánni og laxinn í tökustuði. Byrjuðum við Ómar bróðir minn t.d. í Grafarhyl á fyrstu vakt og lönduðum þar 5 löxum, allt tveggja ára laxar, á innan við klukkustund. Ég man ekki eftir að hafa séð svona mikið af laxi í ánni áður.
Ég enda svo alltaf tímabilið ofarlega í Þjórsá og veiði þar mikið í september og gekk það ágætlega, sérstaklega mikið var af sjóbirtingi í ánni og í góðum holdum. Maður telur niður dagana og bíður eftirvæntingarfullur eftir næsta ári,“ sagði Marvin enn fremur.



