Elvar Friðriksson skrifar í Sportveiðiblaðið 2. tbl 2023:
Nýlega kom út svört skýrsla frá Hafrannsóknarstofnun sem sýndi fram á, án nokkurs vafa, að íslenski laxastofninn er í mikilli hættu. Skýrslan fjallaði um erfðablöndun vegna strokulaxa úr sjókvíaeldi. Því miður er staðan sú að erfðablöndun er byrjuð að eiga sér stað í íslenskum ám og hún mun bara aukast ef haldið verður áfram á sömu braut.
Af hverju er erfðablöndun hættuleg fyrir villta laxinn?
Eðlilegt er að fólk spyrji að því. Eldisfyrirtækin og boðberar þeirra hafa meira að segja haldið því á lofti að erfðablöndun muni ekki skaða villta laxinn og að náttúruverndarsinnar eigi bara að hætta þessu væli. Er það rétt? Nei, því miður ekki.
Erfðablöndun á sér stað þegar eldislax sleppur úr sjókví, finnur sér á til að synda upp í og hrygnir svo með villtu löxunum í þeirri á. Munurinn á villta laxinum og eldislaxinum er mikill. Sá villti hefur aðlagast aðstæðum á Íslandi og í heima-á sinni frá því á síðustu ísöld. Innprentað í erfðaefni þeirra er hæfnin til að lifa af í náttúrunni, synda þvert yfir Atlantshafið, koma svo aftur í eigin heima-á og fjölga sér svo að hringrásin geti endurtekið sig. Eldislaxinn er hins vegar húsdýr sem hefur verið erfðabætt í nær fimm áratugi, með það eina markmið að stækka og fitna sem hraðast, svo að hann komist sem allra fyrst á disk neytenda. Samt sem áður hefur þetta húsdýr sama eðli og villti laxinn, þ.e. að hrygna og fjölga sér. Þegar villti laxinn og eldislaxinn eignast afkvæmi er því verið að draga úr hæfni afkvæmisins til að lifa af í náttúrulegu umhverfi sínu. Þetta gerist svo aftur og aftur, erfðaefnið þynnist út og á endanum munu afkvæmin einfaldlega ekki vera hæf til þess að viðhalda stofninum. Þetta er nokkuð sem talsmenn sjókvíaeldis hafa haldið fram að verði ekki vandamál. Það er einfaldlega lygi og það þarf ekki að horfa lengra en til Noregs til sjá það. 70% laxastofna þar eru nú erfðablandaðir og færri og færri laxar koma til baka. Á heimsvísu hefur Atlantshafslaxi fækkað um 70% á síðastliðnum 40 árum. Spurningin er því einfaldlega: Viljum við hækka það upp í 100%? Viljum við vera kynslóðin sem útrýmdi villta laxinum?
Eldið er margfalt í dag miðað við fyrir nokkrum árum
Tæplega 6.500 laxaseiði voru rannsökuð og tekin úr þeim erfðasýni, en meðalframleiðsla í sjókvíaeldi á Íslandi var um 6.900 tonn á þeim tíma sem sýnin voru tekin. Framleiðslan í dag er um 43.000 tonn og stendur til að auka hana til muna. Því má áætla að staðan sé mun verri í dag, þar sem að sýnin í rannsókninni eru ekki ný. Erfðablöndun mælist þó í 4,3% sýna og erfðablöndun greindist í nokkrum af merkustu laxveiðiám landsins, t.d. Víðidalsá, Hofsá og Laxá í Aðaldal, allt að 250 km frá sjókvíum. Talsmenn sjókvíaeldis hafa staðfastlega haldið því fram að laxinn sem sleppi fari ekki langt og hægt sé að 10–12 falda sjókvíaeldi í sátt og samlyndi við náttúru og villtan lax, þó án þess að sýna fram á staðföst rök eða gögn sem styðja það. Hvernig er hægt að halda þessu fram? Staðan er einföld. Við þurfum að hætta þessu kjaftæði og tala hreint út. Sjókvíaeldi er úrelt og mengandi starfsemi sem mun valda því að villtur lax deyr út. Sjókvíaeldi er arðbærasta og ódýrasta leiðin (fyrir fyrirtækin) til að framleiða lax, þess vegna halda talsmenn þessa iðnaðar því fram að allt sé í góðu. Það er einfaldlega ekki hægt að stunda þennan iðnað í sátt og samlyndi við náttúruna. Það hefur verið reynt í mörgum löndum og hvergi hefur það tekist.
Stjórnarsáttmálinn: Verður staðið við hann?
Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er eftirfarandi haldið fram: „Mótuð verður heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis. Við þá vinnu verður lögð áhersla á tækifæri til atvinnusköpunar og mikilvægi þess að greinin byggist upp á grundvelli sjálfbærni, vísindalegrar þekkingar og verndar villtra laxastofna.“
- Vísindin tala sínu máli. Þetta er ekki ganga upp. … Erfðablöndun hefur átt sér stað, mun aukast og nú þegar eru villtir stofnar farnir að líða fyrir það.
- Sjálfbærni er hugtak sem sjókvíaeldisfyrirtæki skreyta sig með til þess að selja vöru sína en starfsemin er að þurrka út villtan lax.
- Verndun villtra laxastofna er setning sem lítur vel út á blaði en ef sú er virkilega ætlun þessarar ríkisstjórnar verður að grípa strax í taumana og hætta þessari starfsemi.
Það er búið að reyna þetta annars staðar, hluthafar græða en náttúran tapar. Það er svoleiðis þar og hér og alls staðar þar sem þessi starfsemi er stunduð. Hættum að slá ryki í augun á fólki og gerum það sem er rétt í stöðunni, það sem er rétt fyrir náttúruna, komandi kynslóðir og konung fiskanna, villta laxinn. Hættum að stunda sjókvíaeldi áður en það verður of seint.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF)