Það eru stórlaxar á sveimi í Ytri–Rangá og í þessum töluðu orðum var þessi 101 cm hængur að koma á land. Laxinn veiddist í Kerinu fyrir ofan Ægisíðufoss. Veiðimaður Theadór Friðjónsson.
Í gær kom á land 98 cm hængur og einnig annar fyrr í vikunni. Annars er mjög flottur gangur í veiðinni hjá okkur og eru að koma á bilinu 50-60 laxar á dag.
Ytri–Rangá er komin í annað sætið Þverá í fyrsta, það líður ekki að löngu þangað til Ytri–Rangá hirðir efsta sætið, síðasta vika gaf yfir 250 laxa þar.