FréttirOpnun

Kuldalegt við opnun í Mývatnssveitinni

Hafþór Bjarni Bjarnason með einn góðan urriða í dag

„Já það var flott veiði Bender, þrátt fyrir kulda og snjómuggu hérna í Mývatnssveitinni, þegar við vorum að opna svæðið,“ sagði Bjarni Júlíusson þegar við heyrðum í honum en svæðið hefur verið opnað. Það var kalt en fín veiði enda vanir veiðimenn sem þekkja svæðið vel eftir marga ára veiði.

„Það veiddist vel, mokveiði á Geirastöðum og Hofstaðalandi, bara gott kropp á flestum stöðum. Já þetta var bara fín veiði og það hlýnar á morgun, þetta verður bara glæsilegt hérna,“ sagði Bjarni í opnun í Mývatnssveitinni í kulda til að byrja en allt stendur til bóta. Þetta var engin metdagur á svæðinu en þeir koma þegar hlýnar og maður þarf ekki að skafa snjóinn af bílnum. Sá tími kemur fjótlega. 

Bjarni Júlíusson kominn með fisk á land