Fimm fallegir laxar á land og einn maríulax
„Það veiddust fimm laxar í morgun og mamma hans Einars fékk maríulaxinn svo allir fengu einn lax,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir þegar Þjórsá opnaði í morgun hjá Urriðafossi og afrakurinn voru fimm tveggja ára laxa. „Já þetta var flott byrjun hjá okkur en við vorum að byrja núna eftir hádegishléið og ætlum að veiða fram á kvöld. Byrjunin lofar góðu og fiskarnir vænir og vel haldnir úr sjó,“ sagði Harpa Hlín enn fremur.
„Veiðiskapurinn byrjar flott og allir fengu fisk,“ sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi sem veiddi sinn fyrsta lax í sumar; „lofar góðu með sumarið hérna,“ sagði Haraldur meðal annars.
Þjórsáin er ekki vatnsmikil núna enda verið kalt inná hálendinu og ekki mikið hlýindi ennþá.


