Fréttir

Gufuá reddaði geðheilsunni

Jógvan Hansen með flottan lax úr Gufuá í Borgarfirði í kvöld

„Já þetta var skyndiákvörðun hjá okkur Sigurjóni og við hentumst upp í Borgarfjörð í Gufuá,” sagði Jógvan Hansen, sem var búinn að  fá nóg af endalausri rigningu í bænum og skrapp til veiða en flestar ár á leiðinni eru eins og stórfljót, eftir endalausar rigningar dag eftir dag.

„Árnar voru vatnsmiklar á leiðinni sem er skiljanlegt og litaðar, en Gufuáin var allt í algi, smá litur á henni. Ég náði strax lax eftir við komum uppeftir og svo fengum við annan lax. Það höfðu veiðst laxar í henni í dag og síðustu daga. Þetta var frábær ákvörðun að skreppa aðeins og veiða eftir alla þessa rigningu, reddaði geðheilsunni alveg,” sagði Jógvan ennfremur, með lax í skottinu sem  átti að vera í matinn á næstu dögum.

Árnar eru víða vel bólgnar á stóru svæði á Vesturlandi, eftir regn sem enginn man eftir, svona endalaust. Svo mikið vatn var í Laxá í Leirárveit ofarlega að eriftt að sjá hvar árfarvegurinn var eiginlega

l