FréttirMaríulax

Klapparfljótið sterkt enn eitt sumarið

Úlfhildur Rún Sindradóttir með Mariulaxinn sinn

„Í sumar hafa veiðst 41 laxar í Hvolsá og Staðarhólsá,“ sagði Úlfar Reynisson, sem var að hætta veiðum í góðra vina hópi.

„Við veiddum 6 laxa, 2 sjóbirtina og 15 – 20 bleikjur. Það vantar rigningu, báðar árnar eru vatnslitlar, það er óvenju lítið vatn í Brekkudalsá og þess vegna er óvenju lítið vatn í Hvolsá.  

Það var mikið fjör í Lóninu, margir laxar að stökkva og þar veiddist einn lax. Þrír laxar veiddust í Klapparfljóti, en helmingur allra laxa í sumar hafa veiðst þar.  Maríulaxinn veiddist í Gljúfrunum fyrir ofan Kjarlaksvelli. Úlfhildur Rún Sindradóttir veiddi laxinn,“ sagði Úlfar enn fremur.