Risafiskur úr Stóru-Laxá í Hreppum
Í morgun veiddist í veiðistaðnum Bergsnös í Stóru Laxá í Hreppum, 108 sentimetra fiskur en það var erlendur veiðimaður sem náði þessum risalaxi. Þetta er stærsti laxinn sem hefur veiðst í laxveiðiánum í sumar, en næsti lax í röðinni veiddi Nils Folmer Jorgensen í Laxá í Aðaldal fyrr í sumar, en sá fiskur var 107 sentimetrar. Nils var í Stóru-Laxá fyrir fáum dögum og veiddi vel af laxi.
Stóra Laxá hefur gefið 1300 laxa á þessu sumri en það er helmingi betri veiði en á sama tíma í fyrra.


