Fréttir

Saga laxveiða í Borgarfirði – kynningarfundur 27. október

Veiðimaður með 99 sm lax úr Norðurá í Borgarfirði

Í Borgarfirði eru gjöfular laxveiðiár sem eiga sér bæði langa og merkilega sögu hvað varðar veiðiaðferðir og áhrif á búsetu í héraði. Landbúnaðarsafn Íslands fékk nýverið veglegan öndvegisstyrk úr Safnasjóði til að skrá sögu laxveiða í Borgarfirði, en þessi stuðningur gerir starfsmönnum Landbúnaðarsafnsins kleift að halda þeirri vinnu áfram.

Markmiðið er að safna heimildum og rannsaka sögu laxveiða í Borgarfirði frá ólíkum sjónarhornum og þessu efni verður síðan miðlað með útgáfu og sýningu á lofti Halldórsfjóss á Hvanneyri.

Landbúnaðarsafn Íslands boðar til kynningarfundar fimmdudaginn 27. október nk og hefst kl. 20 í Ásgarði, aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þar verður verkefninu formlega ýtt úr vör og kynnt betur fyrir fundargestum. Áhugafólk og aðrir eru hvattir til að mæta og verða kaffiveitingar í boði.

Saga laxveiða í Borgarfirði er samstarfsverkefni Landbúnaðarsafns Íslands, Sambands borgfiskra veiðifélga, Erfðalindaseturs Landbúnaðarháskóla Íslands, Hafrannsóknarstofnunar og Héraðsskjalasafns Borgafjarðar.