FréttirOpnun

Fjórir laxar á land í Norðurá

Veitingamaðurinn Nuno Alexandre Bentim Servo með einn af fyrstu löxum í Norðurá á þessu veiðitímabili

„Það var meiriháttar og gaman að veiða einn af fyrstu löxunum í Norðurá,“ sagði Nuno Alexandre Bentim Servo veitingamaður, sem opnaði ána ásamt fleiri vöskum veiðimönnum og aðstæður eru kjörnar þessa dagana. Flott vatn og fiskurinn að mæta.

Núna hafa veiðst fjórir laxar og sá stærsti var 93 sentimetrar fiskur sem Rafn Valur Alfreðsson fékk. „Já fiskurinn minn veiddist á Bryggjum og ég var töluverðan tíma að landa honum,“ sagði Nuno Alexandre og bætti við; „þessi fiskur var 85 sentimetra og tók svarta frances, gaman að byrja sumarið með þessum hætti,“ sagði Nuno enn fremur. 
Fjórir laxar og það var Ævar Úlfarsson sem veiddi þann fyrsta í Norðurá á Eyrinni.