Miðfellsfljótið loksins gjöfult
„Í rúman áratug höfum við Davíð Ingason farið til veiða í Laxá í Leirársveit um mánaðamótin júní/júlí og oftast veitt mjög vel,“ segir Helgi Sigurðsson og segir svo; „Þó hefur Miðfellsfljótið ekki verið okkur gjöfult og við höfðum aldrei náð að landa laxi á þessum fræga veiðistað þegar við héldum þangað snemma í morgun. Á leiðinni reiknaðist okkur svo til að við værum búnir að kasta flugum þar samtals í tvær heilar vinnuvikur án þessa að landa laxi og því kom til tals hvort við ættum að sleppa Miðfellsfljótinu að þessu sinni. En báðir erum við þrjóskir og auðvitað kom það ekki til greina. Svo fór að við vorum búnir að landa þar þremur löxum fyrir kl. 9. Áttum einnig góða spretti og lönduðum löxum neðar í ánni og förum mjög sáttir heim,“ sagði Helgi.
Laxá í Leirársveit hefur gefið 33 laxa. En kíkjum á veiðitoppinn: Þverá er lang efst með 250 laxa, síðan kemur Norðurá með 150, svo Þjórsá með 100 og síðan Miðfjarðaá með 71 lax.


