FréttirVeiðitölur

255 laxar komnir úr Hrútafjarðará

Bjarni Ágústsson með lax úr Hrútafjarðará.

„Já við vorum að hætta i Hrútafjarðará og hollið veiddi 8 laxa og eina bleikju, veiðin gekk bara vel,“ sagði Sævar Sverrisson í samtali en áin hefur gefið 255 laxa sem er töluvert betri veiði en á sama tíma í fyrra og ennþá á eftir að veiða í ánni í hálfan mánuð.

„Það er fiskur víða í ánni en mest líklega í Háeyjarhyl, Réttarstreng og Engjabakka en allir veiddu fisk í hollinu núna. Hrútafjarðará er alltaf jafn skemmtileg veiðiá,” sagði Sævar enn fremur.

Við kíkjum í næsta nágrenni Miðfjarðará komin í 1480 laxa, Víðidalsá 380 laxa, Vatnsdalsá 311 laxa, Laxá á Ásum 470 laxa og Blanda 450 laxa núna.

Norðlensku árnar hafa oft gefið betur.

Sævar Sverrisson og lax úr Hrútafjarðará