FréttirVeiðitölur

Veiðiferð í Tungufljót í Skaftafellssýslu

Sólin að rísa 17. september, útsýnið úr veiðihúsinu

Þann 16. – 18. september s.l. var tíðindamaður veidar.is við veiðar í Tungufljóti og sendi okkur smá skýrslu og myndir.

„Það var með mjög skömmum fyrirvara sem mér bauðst að fara til veiða í tvo daga með góðum félögum og ferðinni var heitið á suðausturlandið í sjóbirting og þar sem fyrirvarinn var afar skammur voru væntingar hvorki miklar né litlar. Ég hafði bara ekkert verið að fylgjast með aflatölum eða gangi máli á sjóbirtingsslóðum, en spennan var samt mikil eins og alltaf þegar haldið er til veiða.

Þetta var mín fyrsta ferð í Tungufljót en hef veitt reglulega í öðrum sjóbirtingsám á svæðinu. Nýr leigutaki er með ánna, Hreggnasi, og er búið að laga og hressa all verulega upp á veiðihúsið á svæðinu. Flott sjálfsmennskuhús sem er innifalið í verði leyfanna og það er með fjórum tveggja manna herbergjum, uppábúnum rúmum og allt til alls og mjög vel staðsett á veiðisvæðinu.

Við komuna var áin mjög bólgin og lituð eftir mikla rigningu kvöldið og nóttina áður en við mættum og skilyrðin því frekar þung, þó náðist að landa nokkrum birtingum þann dag. Strax næsta morgun hafði áin sjatnað verulega og hreinsað sig þannig að aðstæður voru með allra besta móti og veiðin var fín og endaði dagurinn í ca 25 fiskum og margir milli 70 cm og 80 cm langir.

Veiðistaðirnir er fjölbreyttir frá fossi og hröðum strengjum efst í hæga og lygna hylji neðar og margir þeirra eru langir og vatnsmiklir og verða veiðimenn að vera nokkuð röskir og veiða hratt ef ætlunin er að ná yfirferð yfir þá.

Það sem mesta athygli vakti hjá greinarhöfundi var meðaflinn, en Tungufljót er náttúrulega fræg sjóbirtingsá, en í hollinu veiddust 3 laxar og þar af tveir um 80 cm langir. Þegar þetta er ritað þann 20. september er búið að veiða samtals 142 laxa í ánni sem er stórkostlegt, því laxastofn árinnar er sjálfbær að fullu og auðvitað skyggir það ekki á ánægju veiðimanna þó einn og einn lax „slæðist með” fallegu sjóbirtingunum sem áin hefur að geyma, nema síður sé. Strax farinn að skipuleggja næsta túr í Tungufljótið.”

Hnausþykkur 75 cm sjóbirtingur úr Búrhyl
Flottur 79 cm lax sem tók Black Ghost, þá öflugu flugu sem er jafnvíg á lax og silung