FréttirVeiðitölur

Þjórsá loksins að komst í gang

Hann er kominn í háfinn í Þjórsá /Mynd: GB

Laxveiðin byrjaði rólega og er ennþá á hægferð þó hafi komið skot í hana eins og fyrir norðan en fiskurinn virðist vera seinn á á ferðinni og það gæti verið skýringin. Allavega hefur síðasti straumur gefið laxa og þó nokkra vítt og breytt.

„Veiðin er loksins að glæðast hjá okkur hérna í Urriðafossi í Þjórsá, geggjaðir dagar um helgina og mikið líf í ánni,“ sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi í samtali og bætti við; „það er búið að landa 100 löxum um helgina, sem er frábært, já frábær veiði loksins. Kraftmiklar og góðar göngur. Urriðafossinn er orðinn eins og við þekkjum hann, bara þremur vikum seinn en oftast áður,“ sagði Haraldur enn fremur.

Urriðafossinn hefur gefið á milli 230 og 240 laxa. Veiðin virðist aðeins vera að lagast en samt aðeins á ákveðnum svæðum, hitt kemur kannski með tímum. Straumurinn hefur gefið nokkrar góðar göngur.