Fjör hjá þeim feðgum í Fnjóská
„Við feðgar vorum við veiðar í Fnjóská dagana 1. – 3. ágúst og var þetta alveg frábær ferð,“ sagði Haraldur Friðriksson og bætti við; „Við lönduðum þremur löxum, 55, 80 og 86 cm, tveimur urriðum 50 og 57 cm og tveimur bleikjum 44 og 45 cm.
Misstum einn lax og tvo urriða. Alltaf gaman að heimsækja þessa frábæru á enda búinn að heimsækja hana í 38 ár.
Bæði eldri og yngri strákurinn hafa fara með mér og geta ekki hugsað sér að missa af túrnum og er yngri strákurinn að fara í annað sinn með mér, farinn að kasta með tvíhendu og orðinn ansi klókur við þetta,“ sagði Haraldur enn fremur.

