Birtingurinn er mættur í Leirá
Í gær skruppu Halldóra og Jóhannes í Leirá og lentu í flottri veiði. Samtals lönduðu þau 7 fiskum á milli sín og settu í fleiri.
Eftir að hafa náð tali af Jóa sagði hann okkur að fiskur væri að ganga á fullu fram hjá þeim. Fiskarnir sem þau lönduðu komu úr Berghyl og Holunni.
„Við komumst í raun bara yfir tvo veiðistaði, því það var svo mikið að gerast að við náðum ekki að prófa aðra.“
Þau urðu einnig vör við lax sem sýndi sig í Holunni. Jói sagði okkur líka að hann hefði sett í stóran fisk í Holunni, en sá slapp því miður.
Við látum nokkrar myndir fylgja með úr ferðinni þeirra. Það hefur rignt verulega síðustu daga og það hleypir strax lífi í Leiránna svo um munar á stuttum tíma.


