FréttirRjúpanSkotveiði

Rjúpnaveiðin hafin

„Rjúpnatímabilið hófst í morgun og veiðifólk farið af stað til fjalla með þá von í huga að jólamaturinn komist heim í frystinn,” segir Þórey Inga Helgadóttir um rjúpnaveiðina framundan.
„Gangið hægt um gleðinnar fjöll, farið varlega, skiljum ekkert eftir nema sporin og njótum samverunnar með veiðifélögum og náttúrunni.
Gleðilega rjúpu veiðifólk nær og fjær!
Ekki má gleyma að þakka Skotveiðifélag Íslands Skotvís fyrir þá ómetanlegu og þrotlausu vinnu sem þau hafa lagt í að styðja við og berjast fyrir að veiðifólk fái áfram að stunda sjálfbærar rjúpnaveiðar,” segir Þórey Inga í lokin.