Þrátt fyrir að veiðin hafi ekki gengið vel síðustu þrjú árin og minnkað með hverju árinu þá gengur sala veiðileyfa vel. Erfitt er að fá veiðileyfi í mörgum veiðiám á sumri komanda, á sama tíma hafi veiðileyfin hækkað töluvert á milli og mikið í sumar árnar. „Já það er erfitt að fá veiðileyfi sumstaðar og það er alveg rétt og sumar árnar eru alveg uppseldar“, sagði veiðimaður sem við heyrum í og hafði reynt að fá leyfi í laxveiði í júní, það gekk illa. „Veiðileyfin hafa hækkað töluvert en það skiptir varla máli, þau seljast samt“, sagði veiðimaðurinn ennfremur. Veiðimenn og söluaðilar veiðileyfa segja allir það sama, sala á leyfum fyrir sumarið gengur vel., þó svo að laxveiðin minnki með hverju árinu. Það virðist ekki hafa nein áhrif.
Mynd. Sala á veiðileyfum gengur vel fyrir sumarið. Mynd GB