Fréttir

Frosnar ár en snjórinn farinn

Séð upp Norðurárdalinn

Biðin eftir að veiðin byrji styttist með hverjum deginum, sjóbirtingurinn eftir 20 daga og síðan vatnaveiðin, allt er þetta að koma. Snjórinn er reyndar að hreyfa á stórum hluta landsins eins og vesturlandi. Staðan var góð fyrir tveimur mánuðum en nú er staðan allt önnur. Einn og einn skafl sést á víð og dreif en ekkert meira.  En árnar og vötnin er frosnar þessa dagana eftir síðasta kuldakast. Veiðileyfin seljast ágætlega en ennþá eru laus leyfi í sumum veiðiám, etv. vegna þess að verðið hefur hækkað heldur mikið, einginlega alltaf mikið. Það er ákveðið vandamál því enginn veit hvernig veiðin verður á komandi sumri.

Séð niður eftir Norðuránni í átt Skessuhorni /Myndir María Gunnarsdóttir

Borgarfjörðurinn var tignarlegur í gær, Norðurá frosinn næstum öll en snjórinn er að hverfa, varla nema einn og einn skafl.